18.01.2012 10:43

Bæn í tilefni nýs árs

Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Almáttugi, kærleiksríki og eilífi Guð, höfundur og fullkomnari lífsins!

Ég þakka þér fyrir árin öll og trúfesti þína sem varað hefur frá kyni til kyns. Þú ert í dag hinn sami og um aldir. Og það er gott að geta treyst því að þú skulir ekki yfirgefa þín elskuðu börn, sem eru þér svo óendanlega dýrmæt.
Blessaðu allar minningar okkar jafnt ljúfar sem sárar. Gefðu að þær verði að perlum sem við getum tekið með okkur inn í nýja tíma. Dýrmætri reynslu sem við getum lært af og nýtt okkur.
Hjálpaðu mér á nýju ári að rækta betur tengslin við þau öll sem ég elska og eru svo mikilvæg í tilveru minni. Blessaðu samskipti okkar og öll þau verkefni sem bíða okkar á nýju ári. Hjálpaðu mér að lifa þannig að það mætti verða þér til dýrðar, samferðafólki mínu til blessunar og sjálfum mér til heilla.

Ég þakka þér að ekkert getur slitið mig úr þínum náðar faðmi. Gefðu að hvert andartak, æðarslag og fótmál mætti vera í takt við lífið og vilja þinn og  hjálpaðu mér að missa aldrei sjónar af tilgangi mínum hér á jörð.
Blessaðu framtíð Íslensku þjóðarinnar. Gef ráðamönnum hennar visku og vísdóm til að leggja sig fram og leiða okkur upp úr þeim öldudal sem við höfum verið að fara í gegnum að undanförnu. Gefðu að heiðarleiki og heilindi mætti auðkenna samskipti okkar og að okkur mætti auðnast að huga sérstaklega að þeim sem hallar á á einhvern hátt. Veit okkur að standa saman og efl með okkur víðsýni og umburðarlyndi.

Fyrirgefðu mér öll þau fjölmörgu skipti sem ég hef hlaupið á mig, brugðist vitlaust við eða breytt rangt gagnvart samferðafólki mínu, fjölskyldu og vinum. Hjálpaðu mér að leitast við að gera betur frá degi til dags og lifa í kærleika og sátt við umhverfi mitt og alla menn.
Hjálpaðu mér í nútíð og framtíð að leyfa þér að hafa áhrif á framkomu mína og veru alla, skoðanir, viðbrögð og verk. Og gef að áformum mínum muni framgengt verða svo framarlega að þau séu samferðafólki mínu til blessunar og þér til dýrðar. Rammaðu líf mitt inn með kærleika þínum og leyfðu mér að upplifa hann frá degi til dags.  Og ég þakka þér fyrir að fá að taka þátt í því ævintýri sem lífið er. Leyfðu mér að njóta þess í þínu ljósi og veit mér til þess æðruleysi og þolinmæði, þolgæði og þrautsegju.

Ég bið þig algóði Guð að gefa okkur náðar ár. Ár tækifæra og uppskeru, þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. Hjálpaðu okkur að endurmeta stöðu okkar og kenndu okkur að meta það sem gott er, hin raunverulegu gildi og gæði lífsins.

Hjálpaðu okkur svo að lokum að dýpka í þér og bera ávöxt. Fella múra öfga, fordóma og sinnuleysis.

Alls þessa leyfi ég mér, í barnslegri einlægni en fátæklegri trú, að biðja þig, höfundur, gjafari og fullkomnari lífsins. Í trausti þess að þú munir vel fyrir sjá.
Í nafni frelsarans okkar, Jesú Krists. Amen.

Höfundur er rithöfundur