25.08.2009 08:46

Morgunbæn

Morguninn er hlið dagsins og við skulum gæta þess hliðs vel með bæn.
Morguninn er eins og snúra sem öll atvik dagsins eru þrædd á og við ættum að binda öruggan hnút á með bæn.
Ef við gerðum okkur betur grein fyrir alvöru lífsins hugsuðum við meira um hvernig við byrjuðum daginn.
Sá sem rýkur upp úr rúminu beint til starfa sinna án þess að taka sér tíma til að lesa Biblíuna og biðja hagar sér jafn fávíslega og sá sem færi út án þess að klæða sig.
        C.H. Spuregon.