08.09.2009 08:32
Bláberjamauk.
1 kg. bláber.
750 gr. sykur.
1 tesk. Melantine
1 matsk. sykur.
Sjóða saman bláberin og sykurinn í u.þ.b. 15-20 mínútur.
Því næst á að hræra saman Melantínið og 1 matsk. sykur og
strá því yfir maukið í pottinum og láta sjóða í 2 mínútur.
Setja maukið í krukkur og láta það kólna áður en þeim er lokað.
Höfundur: Ingibjörg Ólafsdóttir, Akureyri
