15.08.2010 23:37
Orlof eldri borgara á Löngumýri.
Í sumar dvöldu þrír hópar á Löngumýri eins og undanfarin sumur.
Þar var margt til gamans gert og þess gætt að allir gætu notið dvalarinnar eins vel og kostur er.
Á dagskrá var helgistund hvern morgun, leikfimi, gönguferðir og einnig notuðu margir sér sundlaugina sem er á staðnum. Eftir hádegi var m.a. BINGÓ, sögustundir og umræður
þar sem viðstaddir ræddu meðal annars um skólagöngu sína, fermingardaginn sinn og margt fleira sem gaman var að rifja upp.
Var af þessu mikil ánægja og merkilegt hvað sagan var ólík og bakgrunnur fólksins mismunandi. Á hverju kvöldi var kvöldvaka á þá kom fólk úr sveitinni í heimsókn og skemmti með söng og upplestri. Má þar nefna t.d Sigfús og Pétur í Álftagerði og undirleikara þeirra Stefán R. Gíslason, einnig kom Agnar H. Gunnarsson bóndi á Miklabæ til okkar með sögustund. Gunnar Rögnvaldsson forstöðumaður á Löngumýri og Jón Hallur Birkisson vinur hans komu með mjög fjöruga söngdagskrá svo nokkuð sé nefnt. Helga Bjarnadóttir sem hefur umsjón með starfi eldri borgara á Löngumýri yfir vetrarmánuðina kom reglulega í heimsókn og spjallaði við fólkið auk þess að taka þátt í dagskránni með okkur. Þessi þáttur í orlofinu er alveg ómetanlegur og erum við ákaflega þakklát því góða fólki sem gefur þannig af tíma sínum og gerir kvöldvökurnar einstaklega skemmtilegar.
Í hverri ferð er farið í ferðalag og er þá farið eftir hádegismat og komið til baka um kvöldmat. Í fyrstu ferðinni fórum við að Hrauni á Skaga og skoðuðum æðavarpið. Var það mjög ánægjulegt og margir höfðu aldrei séð æðavarp í svo mikilli nálægð fyrr. Þaðan var farið á Skagaströnd og þar kom inn í bílinn Lárus Ægir Guðmundsson sem fór með okkur um bæinn og sagði okkur allt það helsta um uppbyggingu staðarins fyrr og nú. Viðstaddir voru afar þakklátir fyrir þessa góðu leiðsögn og þeir sem höfðu komið áður á Skagaströnd sögðust sjá staðinn í allt öðru ljósi nú en áður.
Næstu tveir hópar misstu af æðavarpinu þar sem því var lokið en fóru þess í stað í ferð um Skagafjörð. Farið var fram í fjörðinn að Bústöðum þaðan sem hægt var að horfa m.a. yfir
í Merkigil. Ekin var svokölluð efribyggð til baka og farið út á Sauðárkrók. Gunnar forstöðumaður var aðalleiðsögumaður okkar í öllum þessum ferðum og var það alveg frábært þar sem hann er svo kunnugur á þessum slóðum. Á Sauðárkróki var farið í Minjahúsið og það skoðað. Einnig í Gestahús sútarans þar sem framleiddar eru skinnavörur í algjörum sérflokki.
Á Löngumýri er mikill og góður matur og fólkið nýtur þess mjög að setjast að svo vel útbúnu matborði á hverjum degi. Það má með sanni segja að allir hópar fengu að njóta góðra daga í orlofinu og góður rómur var gerður að öllum aðbúnaði og einnig hlýju viðmóti starfsfólksins.
Að orlofinu standa: Ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar, Ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma og Löngumýrarskóli.

Skrifað af Valgerður Gísladóttir