13.02.2012 15:32

Hvað er ást í hugum ungra barna?

"Þegar amma mín fékk liðagigtina gat hún ekki beygt sig niður til að lakka táneglurnar lengur.
Svo að Afi minn gerði það alltaf fyrir hana jafnveleftir að hendurnar hans fengu liðagigt líka. Það er Ást."
Rebekka 8 ára

 

"Þegar einhver elskar þig, segja þeir nafnið þitt öðruvísi. Þú bara veist að nafnið þitt er öruggt í munninum á þeim."
Billy – 4 ára

 

"Ást er þegar stelpa setur á sig ilmvatn og strákur setur á sig rakspíra og þau fara út og lykta af hvort öðru."
Karl – 5 ára


"Ást er þegar þú ferð út að borða með einhverjum og hann gefur þér frönskurnar sínar án þess að láta þig gefa sér nokkuð af þínum eigin."
Chrissy – 6 ára


"Ást er það sem lætur þig brosa þegar þú ert þreytt."
Terri – 4 ára

 

"Ást er þegar Mamma gerir kaffi handa Pabba, og hún tekur sopa áður en hún gefur honum það til að vera viss um að bragðið sé í lagi."
Danny – 7 ára

 

"Ást er þegar þið kyssist öllum stundum. Síðan þegar þið eruð þreytt á að kyssast viljið þið enn vera saman og tala meira. Mamma mín og Pabbi eru þannig. Það er ógeðslegt þegar þau kyssast."
Emily – 8 ára

 

"Ást er það sem er með þér í stofunni á Jólunum ef þú stoppar að taka upp gjafirnar og hlustar."
Bobby – 7 ára (Vaá!)

 

"Ef þú vilt læra að elska meira skaltu byrja á vini sem þú hatar,"
Nikka – 6 ára
(við þurfum nokkrar milljónir af Nikkum á þessa jörð)  

 

"Ást er þegar þú segir strák að þér finnist skyrtan hans falleg, og þá gengur hann í henni alla daga."
Noelle – 7 ára  

 

"Ást er eins og lítil gömul kona og lítill gamall maður sem eru enn vinir jafnvel eftir að þau kynnast hvort öðru svo vel."
Tommy – 6 ára

 

"Þegar ég var með píanótónleikana mína, var ég á sviði og ég var hrædd. Ég leit á allt fólkið sem horfði á mig og sá Pabba minn veifa og brosa. Hann var sá eini sem gerði það. Ég var ekki hrædd lengur"
Cindy – 8 ára

 

"Mamma mín elskar mig meira en nokkur annar. Þú sérð engan annan kyssa mig góða nótt á kvöldin."
Clare – 6 ára

 

"Ást er þegar Mamma gefur Pabba besta hlutann af kjúklingnum."
Elaine - 5 ára

 

Ást er þegar Mamma sér Pabba illa lyktandi og sveittan og segir enn að hann sé myndarlegri en Robert Redford."
Chris – 7 ára

 

"Ást er þegar hvolpurinn þinn sleikir þig í framan eftir að þú skildir hann eftir einan allan daginn."
Mary Ann – 4 ára  

 

"Ég veit að stóra systir mín elskar mig vegan þess hún gefur mér öll gömlu fötin sín og verður að fara í búðina og kaupa ný."
Lauren – 4 ára

 

"Þegar þú elskar einhvern, fara augnhárin upp og niður og litlar stjörnur koma út úr þér.' (þvílík sýn)
Karen – 7 ára

 

"Þú ættir ekki að segja “Ég elska þig” nema þú meinir það. En ef þú meinar það áttu að segja það oft.  Fólk gleymir."
Jessica – 8 ára

 

Og að lokum:

4 ára gamall drengur átti gamlan herramann að nágranna sem hafði nýlega misst konuna sína.
Þegar hann sá gamla manninn gráta, fór litli drengurinn inn í garð herramannsins, klifraði upp í kjöltu hans og bara sat þar.
 
Þegar móðir hans spurði hann hvað hann hafði sagt við gamla manninn svaraði hann: “Ekkert. Ég bara hjálpaði honum að gráta”
 
 

Það er fyrst þegar ekkert er eftir nema Guð, að við gerum okkur ljóst að Guð er allt sem við þurfum.
Förum með örstutta bæn í huganum fyrir hvort öðru og höldum hamingjusöm og full ástar út í lífið.