Forsíða
Styrkur minn er styrkur þinn
,,Styrkur minn er styrkur þinn´´ er yfirskrift námskeiðs sem haldið verður á vegum Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastdæma þann 15. febrúar í Grensáskirkju.
Á námskeiðinu verður tekið fyrir efni er snýr að eflingu sjálfstrausts.
- Hvaða aðferðir nýtast okkur til eflingar sjálfstrausts?
- Hvað er það sem veitir okkur þann styrk sem eflir sjálfstraust okkar og getum við miðlað auknum styrk til annarra?
Fyrirlesarar kvöldsins verða þau sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Marteinn Steinar Jónsson sálfræðingur og sr. Lena Rós Matthíasdóttir.
Námskeiðið hefst klukkan 17:15 og lýkur 21:30. Námskeiðsgjald er 2500 krónur (innifalinn léttur kvöldverður).
Hægt er að skrá sig í síma 567-4810 f.h. virka daga eða á netfangið ellimal@simnet.is
Bæn í tilefni nýs árs eftir Sigurbjörn Þorkelsson
>>Lesa meira
Velkomin á vef Ellimálanefndar Þjóðkirkjunnar
Vefurinn er byggður á efni úr lausblaðamöppu sem Ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar gaf út.
Útgáfu möppunnar hefur verið hætt, en stöðugt er leitað að nýju efni sem að gagni kemur í kirkjustarfi eldri borgara og er því komið jafnharðan inn á vefinn.
Á Gamla Nóa birtast einnig tilkynningar um það helsta sem er framundan í starfi eldri borgara innan Þjóðkirkjunnar hverju sinni.
Vonum við að sem flestir geti nýtt sér það efni sem birtist á vefnum.
