Brandarar
Ung móðir var að segja vinkonu sinni frá syni sínum. Hann Óli minn er nú orðinn tveggja ára og hann er búinn að ganga síðan hann var níu mánaða. Vinkonan rak upp stór augu: Þú segir ekki!! Blessaður drengurinn, ósköp hlýtur hann að vera orðinn þreyttur!!!
Það er naumast að þú ert komin í fínan pels. Þú hefur nú líklega þurft að gefa manninum þínum ærlegan koss fyrir. Ja, reyndar kostaði hann vænan koss.
En það var kossinn sem einkaritari mannsins míns fékk hjá honum.
Sigurður gamli kom í eftirlit hjá lækninum sínum. Lækninum leist ekki meira en svo vel á heilsufar hans og spurði. Hefur þú ekki fylgt ráðleggingum mínum?
Þú manst að ég ráðlagði þér að reykja 5 vindla á dag og alls ekki meira.
- Jú, - sagði vesalings Sigurður og dró við sig svarið. Vandinn er bara sá, - að ég hefi aldrei reykt fyrr.
Jóhannesi finnst ég vera fegursta stúlkan á jarðríki. Þegar hann bað mín sagði ég strax já. - Nú hefur þú heldur betur hlaupið á þig. - Þorir þú virkilega að giftast svona miklum lygalaup?
Bílstjóri var á ferð úti á landi. Hann varð fyrir því óhappi að aka yfir hana á einum sveitabænum. Hann gaf sig strax fram við bóndann, harmaði óhappið og bauðst til bæta skaðann. Ágætt, svaraði bóndinn. Þú tekur þá að þér að vekja mig á morgnana klukkan sex.
Gísli og Gudda voru nýkomin úr heimsókn til vina sinna í Hafnarfirði. Gudda sagði við bónda sinn: En hvað ég held að við höfum gert mikið góðverk með því að líta inn hjá þeim. Af hverju dregur þú þá ályktun spurði Gísli.? Jú, sástu ekki hvað þau voru döpur þegar við komum. En þegar við fórum ljómuðu þau eins og sól í heiði.
Það var hringt frá bílaverkstæðinu. - Góðan daginn.- Konan yðar var hér með nýja bílinn ykkar og mig langar til að vita hvert ég á að senda reikninginn.
? En sú spurning. -
Þér gerið auðvitað við bílinn eins og þörf er á og sendið mér svo reikninginn.
Það er ekki bíllinn sem um er að ræða hr. forstjóri. - heldur bílaverkstæðið.!!!
Tveir vinir fóru á kaffihús og fengu sér kaffi og tertu. Annar nældi sér í snatri í stærra stykkið af tertunni. Hinn sagði: Þú ert ekki beint kurteis að taka stærri bitann. ?
Hinn spurði frakkur: - Hvorn bitann hefðir þú tekið ef þú hefðir mátt ráða?
Auðvitað þann minni, svaraði hinn.
Hvað ertu þá að rífast? ? Það var einmitt hann sem þú fékkst.
Og svo var það hann Hallur gamli. Hann fór til læknisins og kvartaði um verki í vinstra hné. Eftir nákvæma skoðun kvað læknirinn upp úrskurð sinn. Þetta er bara aldurinn að segja til sín, svo það er ekkert að óttast,
Þá sagði hinn aldni sjúklingur: Hvernig má það vera? Þetta finnst mér í hæsta máta furðulegt.
Hægri fóturinn er alveg jafngamall. Hvað með hann???
Herra Ásgeir var spurður, hvernig honum líkaði að vera kominn á ellilaun.
Ja, það er svo sem ágætt, svaraði hann.
Ég sakna þess bara mest að fá aldrei frídag, hvað þá sumarfrí!!!!
Í miðjum fréttalestrinum er laumað inn blaði til sjónvarpsþularins. Hann býst við að það hljóti að vera mjög áríðandi frétt og les af blaðinu þegar í stað.
Höfum fengið eftirfarandi tilkynningu:
Það situr grænkál fast á milli framtannanna á þér!!!!
Það var kristinfræðitími í fyrsta bekk. Þegar leiðá tímann spurði kennarinn hvort þau vildu ekki syngja einn sálm um Guð. ? María litla rétti þegar í stað upp höndina og
stakk upp á að þau syngju: Guð má vita hver ætlar að kyssa þig núna?????
Tveir menn áttu tal saman. Annar greindi frá því að í næstu íbúð við hann byggju rússnesk hjón. Hann kvað þau fara afskaplega í taugarnar á konu sinni.
Hvernig stendur á því spurði hinn. ? Jú, sjáðu til. Þau eru alltaf að rífast - og konan mín skilur ekki eitt orð í rússneskunni.
Frú Jóna var að láta mála hjá sér. ? Einn morguninn sagði hún við málarana: Þið verðið að fara sérstaklega varlega í dag, því mig dreymdi í nótt að þið duttuð úr stiganum.
- Kæra frú sagði einn þeirra. Takið ekki of mikið mark á draumum. -
Mig er búið að dreyma þrjár nætur í röð að þér gæfuð okkur kaffisopa!!!
