Helgileikur

Helgileikur

Hér kemur helgileikur sem ætti að henta öllum aldurshópum hvar sem er á jólaföstu. Gildir einu hvort hóparnir eru fámennir eða fjölmennir, hvort þeir eru í skóla, kirkju eða heimahúsi. Hver sem er getur stjórnað.
Ætlast er til að einhverjir skiptist á að lesa fyrsta, annan, þriðja og fimmta kafla en allir lesi saman fjórða og sjötta kafla. Betra væri að lesarar gætu litið á kaflana áður.

Að sjálfsögðu taka allir undir sálmasönginn,  enda sé blaði nr. 2 dreift til allra viðstaddra.


Stundin hefst með því að sungið er fyrsta vers sálms nr. 71 í sálmabókinni: Velkomin vertu,vetrarperlan fríð.....

Þá kemur aðalsögumaður og les frásögnina um Hierónímus og barnið í Betlehem.

Svo er sungið síðara vers sálmsins nr. 71:
Velkominn vertu, vor Immanúel....

Herónímus og barnið í Betlehem

Maður var nefndur Híerónímus. Hann var einn af kirkjufeðrunum, dáinn 420 e. kr. Hann hafði sérstakt dálæti á Betlehem og dó sem munkur í klaustri sem hann hafði stofnað þar. Hann var vitur maður og réttsýnn og má margt af honum læra.

Á efri árum sínum skrifaði hann:

?Ætíð þegar ég hugsa um Betlehem ræðir hjarta mitt við Jesúbarnið.
Ég segi: Jesús, hversu hörð er hvíla þín vegna synda minna! Hvernig get ég endurgoldið þér? Þá heyri ég barnið svara:
Ég krefst einskis. Taktu aðeins undir dýrðarboðskapinn um frið á jörðu meðal allra manna. Og vita skaltu að kærleikurinn til þín verður sterkastur í Getsemane og á krossinum helga.
Þá segi ég:
Kæra barn ég verð að gefa þér eitthvað, ég skal gefa þér allt gullið sem ég á.

Barnið svarar: Bæði himinn og jörð tilheyra mér, mitt er silfrið og gullið, ef þú gefur það fátækum gefur þú mér það.
Ég segi: Það vil ég gjarnan gjöra. En ég þrái heitt að gefa þér sjálfum eitthvað.

Þá kemur svarið. Viljurðu vera svo örlátur skalt þú gefa mér syndir þínar, slæma samvisku og fordæmingu.
Ég spyr: Hvað ætlar þú að gjöra við það?


Barnið svarar: Ég vil taka það á herðar mínar, það skal verða minn höfðingjadómur og mitt fullkomna kærleiksverk. Eða eins og stendur hjá Jesaja:

Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla - ég vil bera þína synd.

Híerónímus skrifar: Ég fór að gráta sárt og sagði:

Kæra barn, Jesús. Hversu hefur þú ekki gagntekið hjarta mitt. Ég hélt að þú vildir að þér liði eins vel og mér, í stað þess velur þú þér það versta hjá mér.

"Mér er nú ljóst að takir þú á þig minn hlut en gefir mér hlutdeild í kærleika þínum, þá er ég laus undan syndinni og eignast von um eilíft líf."




Jólahelgistund
blað 2


Sálmur nr. 71 fyrra vers
Hierónímus og barnið í Betlehem.
Sálmur nr. 71 seinna vers

Lestur Jes. 11, 1 og Míka 5, 1-2
Af stofni Ísaí mun kvistur fram spretta
og angi upp vaxa af rótum hans.
Og þú Betlehem Efrata, þótt þú sért einna minnst af héraðsborgunum í Júda, þá skal þó frá þér koma sá, er vera skal drottnari í Ísrael, og ætterni hans vera frá umliðinni öld, frá fortíðar dögum.

Sálmur Lúthers nr. 85 1. vers
Af himnum ofan boðskap ber
oss, börnum jarðar, englaher.
Vér fögnum þeirri fregn í trú,
af fögnuð hjartans syngjum nú.

Lestur Jes. 9, 6
Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn. Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla. Nafn hans skal kallað Undraráðgjafi, Guðhetja, Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingi. Mikill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn engan enda taka á hásæti Davíðs og í ríki hans. Hann mun reisa það og efla með réttvísi og réttlæti héðan í frá og að eilífu.


Sálmur 2. vers
Í dag er heimi frelsi fætt,
er fær vor mein og harma bætt,
það barnið þekkjum blessað vér,
vor bróðir Jesús Kristur er.

Lestur Lúkas 2, 8-11
En í sömu byggð voru fjárhirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði í kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir, en engillinn sagði við þá: ?Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.?

Sálmur 4. vers
Því gleðjumst allir, góðir menn,
og göngum þangað allir senn,
þá jólagjöf ,Guðs son, að sjá,
er sauðahirðar gleðjast hjá.

Allir lesa 1. Jóh. 5, 20
Vér vitum, að Guðs sonur er kominn og hefur gefið oss skilning, til þess að vér þekkjum sannan Guð. Vér erum í hinum sanna Guði fyrir samfélag vort við son hans Jesú Krist. Hann er hinn sanni Guð og eilífa lífið.
Sálmur 5. vers
Æ, velkominn oss vertu þá,
er vorar syndir tókst þig á.
Oss, Jesús, kenn að þakka þér,
að þínir bræður urðum vér.

Lestur Fil. 4, 4-7
Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.
 
Sálmur 9. vers
Því bú til vöggu´ í brjósti mér,
minn besti Jesús handa þér.
Í hjarta mínu hafðu dvöl,
svo haldi´ eg þér í gleði´ og kvöl.

Allir lesa Jóh. 3, 16 og Lúk. 2, 14
Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hann hefur velþóknun á.

Sálmur 10. vers
Af hjarta´ og tungu heilög dýrð
sé Herrans Jesú föður skýrð.
Heyr barna þinna bæn og þökk,
og brjóstin, Guð, sjá glöð og klökk.