Jólaenglar

Jólaenglar

Nú ætla ég að segja frá jólaenglunum,
þessum sem hafa enga vængi
og svífa ekki um víðáttur geimsins.
Þeir eru margir.
Ég þekki engil,
sem ruddi snjónum af tröppunum heima
eitt vetrarkvöld
og annan
sem færði mér óvænt kærkomið bréf.
Hann hafði svo ylrík augu.
Einu sinni talaði ég við engil í síma,
og allur sá dagur varð sindurbjartur.
Englar eru erindrekar kærleikans.
Þeim verðum við að treysta.
Einkum á jólum.

Bíddu nú við:

Kannski ert þú engill

eða gætir orðið það.

Viola Renvall: Ljóðormur 6, 1987