Ó, vef mig vængjum þínum

Sr. Magnús Runólfsson þýddi

 
Ó vef mig vængjum þínum,
til verndar Jesú hér.
Og ljúfa hvild mé ljáðu,
þótt lánið breyti sér.
Vert þú mér allt í öllu,
mín einka-speki og ráð.
Og lát um lífs míns daga
mig lifa af hreinni náð.

Tak burtu brot og syndir,
með blóði Jesú minn.
Og hreint mér gefðu hjarta
og helgan vilja þinn.
Mig geym í gæslu þinni,
mín gæti náð þín blíð.
Að frið og hvíld mér færi,
hin fagra næturtíð.
 

Þennan fagra kvöldsálm hefur Sr. Magnús þýtt fyrir miðja síðustu öld. Hann má finna í Söngbók skógarmanna árið 1949. Virðast  þýðendur beggja sálmanna hafa kynnst þeim á svipuðum tíma. Þessi sálmur hefur allar götur síðan verið mikið sunginn í sumarbúðum ungs fólks og er ekki ólíklegt að Sr. Magnús hafi einmitt þýtt hann til brúks í Vatnaskógi. En þar starfaði hann með drengjum í áratugi á sumrum.

Sagan á bak við þennan sálm er í raun lífssaga Línu. Hún biður Guð um vernd, hvíld, ró og frið. Hvað sem á bjátar treystir hún á hann og og lýtur hans vilja í einu og öllu.

Eftirmáli:  Frásagnir þessar komu í möppu Ellimálanefndar Þjóðkirkjunnar 1996 og þurfa því nánari skýringa við. Við höfum stigið inn í aðra öld. Því eru árvísanir ekki nákvæmar. Og 1997 kom út ný sálmabók. Þar eru einmitt þessir tveir sálmar teknir inn. Dag í senn nr. 712  í
þýðingu Sigurbjarnar Einarssonar biskups og Ó, vef mig vængjum þínum nr. 594.

Svo nú á Lína Sandell þrjá sálma í sálmbókinni okkar.
Einnig hefur sálmurinn nr. 553 Vertu góði Guð hjá  mér  eftir Einar  M. Jónsson  bæst við.

Samantekt 1995 og 2007 Anna Sigurkarlsdóttir